SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir17. október 2020

Yfirþyrmingar og fleira

Guðrún Hannesdóttir er fædd á fyrsta degi eftir lýðveldisstofnun, 18. júní 1944. Hún byrjaði seint að yrkja eins og oft vill verða með skáldkonur, en ljóð hennar hafa heldur betur ratað til sinna. Í spjalli við Steinunni Ingu Óttarsdóttur segir Guðrún frá ýmsu, s.s. yfirþyrmingum, orðasöfnun og munaðarlausum ljóðabókum.