SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir22. janúar 2021

Þórdís Helgadóttir hlaut Ljóðstafinn

 

Þórdís Helgadóttir hlaut í gær Ljóðstaf Jóns úr Vör 2021 fyrir ljóðið Fasaskipti.

Eyþór Árnason var í öðru sæti og Una Björk Kjærúlf í þriðja sæti.

Skáld.is óskar Þórdísi til hamingju með verðlaunin og birtir hér ljóðið með góðfúslegu leyfi hennar:

 

FASASKIPTI

 

Ég elska börnin mín og börnin sem börnin mín

Elska og börnin sem elska börnin mín.

Þau keyra kuldaskó í gegnum ísinn þegar

Tjörnina hefur lagt. Þau elska að beita afli.

Brjóta flísar úr ísingunni og halda þeim upp að

Andlitinu. Ég sé þau út um gluggann, saltsleikt

Auga hússins. Þau sjá mig gegnum tært gler.

Ljósgul skíma og svo dimmir. Þannig er tíminn

Skorinn í sneiðar, hvítar og svartar, skiptingin

Ekki bróðurleg frekar en á öðrum gæðum.

Frostið herðir á aðgreiningunni milli heima

Og breytir lygum í sannindi. Gerir göngubrú úr

Svokölluðu yfirborði vatnsins. Ef falskir botnar fela

Eitur eða fjársjóði, hvað felur þá falskt yfirborð?

Börnin en ekki ég treysta gljúpri himnunni

Yfir handanheiminum þar sem andardrátturinn

Rennur í öfuga átt. Enda er stutt síðan þau komu

Í gegn, önduðu hringöndun meðan þau drukku,

Fljótandi fæði úr sykurbrjósti. Þau bíta í rendurnar

Bryðja glerbrjóstsykur, stolt af styrk sínum.

Í barnatennur vantar taugarnar fyrir tannkul.

Það blómstrar ætiþistill í eldhúsglugganum.

Enginn elskar veturinn eins og börnin mín.