SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Friðrika Benónýsdóttir

Friðrika Benónýsdóttir er fædd á Húsavík 1956 og alin upp í Reykjadal í Þingeyjarsýslu. 

Friðrika lauk stúdentspróf frá Menntaskólann á Ísafirði 1981 og stundaði nám í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands á árunum 1982-1988. 

Friðrika hefur sinnt margvíslegum ritstörfum og blaðamennsku á ýmsum miðlum, svo sem Morgunblaðinu, Heimsmynd, Rás 1, Fréttablaðinu, Fréttatímanum, Stundinni, Gay Iceland og Mannlífi.

Meðfram blaðamennskunni var Friðrika bókmenntagagnrýnandi á þessum miðlum og einnig var hún í fjögur ár í hópi gagnrýnenda Kiljunnar á RÚV. Auk þess starfaði hún sem prófarkalesari á Fréttablaðinu frá 2008-2010 og var menningarritstjóri blaðsins 2013-2015.

Fyrsta verk Friðriku á prenti var ljóðabókin Steinfuglar (1992) sem hún gaf út sjálf. Eitt þekktasta verk hennar er líklega ævisaga Ástu Sigurðardóttur, Minn hlátur er sorg (1992).

Nýjasta skáldverk hennar frumsamið er Vályndi (2017), hér segir Friðrika frá efni bókarinnar og tilurð. Fyrir hana var Friðrika tilnefnd til Rauðu hrafnsfjaðrarinnar fyrir bestu kynslífslýsingu ársins. Þá hefur Friðrika einnig lagt stund á þýðingar. 

Friðrika á tvær uppkomnar dætur og tvo dóttursyni.


Ritaskrá

  • 2017  Vályndi (skáldsaga)
  • 2017  Eldheit ástarbréf (safn ástarbréfa frá ýmsum tímum)
  • 1997  Nema ástin (skáldsaga)
  • 1992  Minn hlátur er sorg. Ævisaga Ástu Sigurðardóttur
  • 1992  Steinfuglar (ljóðabók)

 

Tilnefningar

  • 2023  Til Ísnálarinnar fyrir þýðingu á Ríki Óttans eftir Hilary Rodham Clinton og Louise Penny
  • 2018  Til Ísnálarinnar fyrir þýðingu á Konan í glugganum eftir A. J. Finn
  • 2017  Til Rauðu hrafnsfjaðrarinnar fyrir bestu kynlífslýsingu í skáldsögunni Vályndi

 

Þýðingar

  • 2024  Silfurkórónan eftir Anna Jansson
  • 2023  Voðaskot eftir Katrine Engberg
  • 2023  Sá sem kemst af eftir Victor Pavic Lundberg
  • 2023  Veðrafjall eftir Liza Marklund
  • 2023  Þögli fuglinn eftir Mohlin & Nyström
  • 2023  Bara aðeins meira eftir Simona Ahrnstedt
  • 2023  Megi dauðinn sofa eftir Anna Jansson
  • 2023  Þagnarbindindi eftir Lone Theils
  • 2023  Betri maður eftir Louise Penny
  • 2022  Orðlaus situr guðinn eftir Anna Jansson
  • 2022  Þögn hinna dánu eftir Anna Jansson
  • 2022  Nornadrengurinn eftir Lone Theils
  • 2022  Hin systirin eftir Mohlin & Nyström
  • 2022  Fiðrildið eftir Katrine Engberg
  • 2022  Allt eða ekkert eftir Simona Ahrnstedt
  • 2022  Kaldamýri eftir Lizu Marklund
  • 2022  Ríki Óttans eftir Hilary Rodham Clinton og Louise Penny
  • 2021  Heimskautsbaugur eftir Lizu Marklund
  • 2021  Ríki hinna blindu eftir Louise Penny
  • 2021  Leysingar eftir Stinu Jackson
  • 2020  Glerhús eftir Louise Penny
  • 2019  Svört perla eftir Lizu Marklund
  • 2019  Silfurvegurinn eftir Stinu Jackson
  • 2018  Konan í glugganum eftir A. J. Finn

 

Tengt efni