SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir10. júlí 2020

Sunnudagsljóð á Selfossi

Við minnum á að í Bókakaffinu á Selfossi sunnudaginn 12. júlí munu ljóð svífa yfir vötnum. Fjögur ljóðskáld koma fram, þar af þrjár konur en upplýsingar um þær allar er að finna í gagnagrunni okkar skáldatals.

Brynjólfur Þorsteinsson og Harpa Rún Kristjánsdóttir munu lesa úr væntanlegum ljóðabókum sínum, en árið 2019 hlutu þau bæði verðlaun fyrir ljóð sín, Brynjólfur hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör og Harpa Rún hreppti verðlaun Tómasar Guðmundssonar.

Nöfnurnar Steinunn Sigurðardóttir og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir lesa einnig og sú síðarnefnda er einnig sellóleikari og tónskáld og mun leika og syngja draumkennda tónlist.

Dagskráin er flutt tvisvar sinnum, kl 14 og 15, og er takmarkaður sætafjöldi á viðburðina svo það er vissara að mæta tímanlega. Talið verður inn og eru 25 pláss í boði. Boðið er uppá ókeypis uppáhelling og te meðan á viðburðunum stendur.