SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir17. maí 2020

Eva Björg Ægisdóttir

 

Glæpasagnahöfundurinn Eva Björg Ægisdóttir er komin í skáldatalið. Eva Björg hefur sent frá sér tvær glæpasögur, Marrið í stiganum og Stelpur sem ljúga, sem hafa fengið fína dóma. Fyrir fyrri bókina hlaut Eva Björg Svartfuglinn, sem eru verðlaun sem veitt eru nýjum höfundum fyrir áður óbirt handrit að glæpasögu.

Í glæpasögum Evu Bjargar kynnist lesandinn lögregluteyminu Elmu og Sævari sem glíma við að leysa sakamál á Akranesi, þar sem höfundurinn fæddist og ólst upp. Bækur Evu Bjargar eru vel skrifaðar og fléttaðar, oft með óvæntum snúningum.

 

 

Um fyrri bókina, Marrið í stiganum, segir í kynningu forlagsins:

Ung kona finnst myrt í fjörunni við Akranes. Hin látna reynist hafa búið sem barn í bænum en flutti skyndilega burt ásamt móður sinni.Lögreglukonan Elma, sem er nýflutt á Skagann, rannsakar málið ásamt samstarfsmönnum sínum. Upp á yfirborðið koma ýmis skuggaleg mál úr fortíðinni en Elma þarf líka að takast á við atburði í eigin lífi sem hröktu hana aftur heim á æskuslóðirnar.

 

 

Um þá síðari,  Stelpur sem ljúga, segir:

Einstæð móðir hverfur af heimili sínu en skilur eftir miða með skilaboðum á eldhúsborðinu. Í fyrstu er talið að hún hafi fyrirfarið sér en þegar illa farið lík finnst í Grábrókarhrauni sjö mánuðum síðar standa lögreglukonan Elma og samstarfsmenn hennar frammi fyrir flókinni morðgátu. Fimmtán árum fyrr liggur nýbökuð móðir á fæðingardeild og hefur óbeit á barninu sem liggur við hlið hennar.