SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir 7. maí 2020

Þula eftir Theodóru Thoroddsen

Ljóð dagsins er eftir Theodóru Thoroddsen (1863-1954) en hún var einna þekktust fyrir þulur sínar. Þessa þekkja trúlega margir:

Þula

,,Tunglið, tunglið, taktu mig
og berðu mig upp til skýja."
Hugurinn ber mig hálfa leið
í heimana nýja.

Mun þar vera margt að sjá,
mörgu hefurðu sagt mér frá,
þegar þú leiðst um loftin blá
og leist til mín um rifinn skjá.

Komdu, litla Lipurtá,langi þig að heyra,
hvað mig dreymdi, hvað ég sá,
og kannske sitthvað fleira.

Ljáðu mér eyra.
Litla flónið, ljáðu mér snöggvast eyra:
Þar er siglt á silfurbát
með seglum þöndum,
rauðagull í rá og böndum,
rennir hann beint að ströndum,
rennir hann beint að björtum sólarströndum.