SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir22. október 2019

Bjart framundan

Eftirfarandi ljóð er eftir Þóru Mörtu Stefánsdóttur, sem bjó að Undralandi í Reykjavík (1905-1981).

Þóra birti nokkur ljóð í tímaritinu Breiðfirðingi, skrifaði eina barnabók og tók saman ættifræðirit.

VORHLJÓMAR

1.

Nú heilsar oss röddin himinskær,

í haganum lyng og víðir grær,

í hlíðinni stendur bóndabær

með burstum og hvítum þiljum.

Af heiðinni andar blíður blær,

og bunar í fjallagiljum.

En djúpt inn í landi dalur hlær,

þar dansar laxinn í hyljum.

2.

Sóngur ómar,

loftið ljómar,

yftist sól úr ægi blá.

Fagur morgunöðull roðar

reynilund og silungsá.

Hjer í blárra fjalla faðmi

finn jeg svölun æðstu þrá.

Glitrar dögg á grænum baðmi

— gullindaggar morgunbrá.

3.

Hýrt er í sveit,

hjarðir á beit.

Eygi jeg út til stranda.

Víðhvelfing há,

himinblá!

Lyft þú sál minni ljósvegu á!

Bjart er til beggja handa.

(Hlín, 1960)

Mynd: ísmús