SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir 2. október 2019

Þér er boðið í útgáfuhóf tveggja barnabóka

Útgáfu tveggja barnabóka verður fagnað í Eymundsson í Smáralind á morgun fimmtudaginn 3. október, kl. 17-19. Önnur bókin heitir Valur eignast systkini og er textinn eftir Helgu Sigfúsdóttur en myndskreytingar eftir Jóhönnu Þorleifsdóttur. Hin bókin er Róta rótlausa og er hún eftir Ólöfu Völu Ingvarsdóttur. Líkt og kemur fram í kynningu bókanna þá fjalla þær um ,,börn með skarð í vör og rótleysi þess sem flytur stað úr stað - en að lokum aftur heim."

Myndin er fengin af viðburðarsíðu Bókaforlagsins Sæmundar sem gefur bækurnar út.