SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir12. september 2019

Slokknar á morgunstjörnunni

Upphafslínur úr ljóðinu „Vetur“ úr bókinni Dvergliljur eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur hafa verðið meitlaðar í eir og lagðar í steinhellur sem minnisvarði um merkar bókmenntir og frábæra skáldkonu. Verkið var afhjúpað á nýju torgi sem kallast Steinbryggja í miðbæ Reykjavíkur á dögunum.

Skáldin Gerður Kristný og Sunna Dís Másdóttir fluttu ljóð eftir Vilborgu af þessu tilefni. Á Steinbryggju geta vegfarendur sest á skáldabekk, og notað snjallsímakóða til að hlusta á Vilborgu sjálfa lesa „Vetur“ og fleiri frábær ljóð.

Vilborg Dagbjartsdóttir fæddist á Hjalla á Vestdalseyri þann 18. júlí árið 1930. Eftir hana liggur fjöldi skáldverka. Fyrsta ljóðabók Vilborgar var Laufið á trjánum sem kom út árið 1960 og var hún þá ein af fáum konum sem skrifuðu atómljóð. Þá hefur Vilborg verið ötull og öflugur þýðandi í gegnum árin og kennari í Austurbæjarskóla í samfelld 45 ár.

Vetur Þegar slokknaði á morgunstjörnunni varð máninn kyrr. Sólin veifaði skýjaslæðu til hans yfir fjallið sem gleymdi að taka ofan nátthúfuna Fíngerðan rósavef óf á rúðuna frostið