SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir 8. september 2019

Meiri sand

Ljóðahópinn Tásurnar skipa þau Ágúst Ásgeirsson, Jóhann G. Thorarensen og Jóna Guðbjörg Torfadóttir en hún er annar ötulla ritstjóra skáld.is.

Jóna er með M.A. próf í íslenskum bókmenntum og M.A. próf í kennslufræði. Hún hefur starfað í rúman áratug sem íslenskukennari í Menntaskólanum við Sund. Jóna hefur fengist nokkuð við ritstörf og þýðingar og sent frá sér fræðigreinar, skáldverk og kennsluefni.

Í þessari bók gefur að líta afrakstur hátt í sex ára ljóðasamstarfs Tásanna. Yrkisefnin eru fyrirfram valin, ólík og óvænt, og hefur hvert skáld sinn háttinn á. Í bókinni er að finna töluvert af kaffi og bakkelsi, en einnig ýmislegt sterkara. Skáldin yrkja um ást, æsku og örlög en einnig skáldskapinn sjálfan og stellingarnar sem þarf til að nálgast hann.

Ákveðin þemu og orð skjóta upp kollinum í ljóðum þeirra allra, en nálgunin er gjarnan gjörólík. Úr verður mis­munandi sýn á sömu hluti, séð frá annarra tám.

Ljóð dagsins er eftir Jónu Guðbjörgu.

 

Með sand í hjartanu
 
Með sand í augum, í nefi,
í eyrum, með sand
í hjartanu.
 
Mér lætur svo vel að þjást.
Ég kann það - enda hef ég
hlotið þjálfun
til margra ára.
 
Má ég því biðja um
meiri sand,
þar til ég má ekki lengur
mæla, næ ekki
lengur
 
andanum. Sand sem hylur
skömmina, felur
sektarkenndina,
grefur eftirsjána.
Meiri sand.
(50)