SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Ritstjórn27. maí 2019

Ljóð minna ljóða eftir Steingerði Guðmundsdóttur

Steingerður Guðmundsdóttir leikkona og ljóðskáld.

Ljóð minna ljóða er eftir hina fjölhæfu listakonu Steingerði Guðmundsdóttir sem þekktust erfyrir leiklistarstarferil sinn. Hún starfaði einnig sem leikhúsgagnrýnandi og stundaði myndlist, leikritun og ljóðagerð. Steingerður var íslenskur módernisti á umbrotatímum og nam bæði hér á landi, í Bandaríkjunum, Svíþjóð og Bretlandi á 4. og 5. áratugnum.

„Steingerður fyllir flokk módernista í ljóðagerð sinni en hún tilheyrði jafnframt þeirri kynslóð listakvenna sem þurfti að berjast talsvert fyrir því að njóta viðurkenningar til jafns við karla (...) Ljóð hennar bera vott um viðkvæma lund, trúarþörf og hrifnæmi, þau eru hófstillt og laus við beiskju og hinn óhefti leikur með ljóðformið vitnar bæði um listræna dirfsku og leitandi hug.“ Svo kemst Halla Kjartansdóttir að orði í formála bókarinnar Bláin sem geymir úrval ljóða Steingerðar. Bókin komið út árið 2004 hjá JPV forlagi.

Eftirfarandi ljóð kemur út seinna á ferli hennar, í bókinni Fjúk árið 1985. Hér veltir skáldið fyrir sér skáldskapnum og hvernig hún er ætíð að reyna að fanga eitthvað handan ljóðsins í ljóðinu sjálfu. Steingerður bregður hér upp mynd af því sem leitar á skáldið. Þránni eftir að fanga það í ljóði, finna réttu orðin og skrifa hið fullkomna ljóð. Í flókinni veröld mannlegra bresta, sorga og missis, vonar og þrár er það á endanum er hið einfalda, náttúran og tengingin við hana, sem hugsanlega geymir svarið.

Ljóð minna ljóða

Hvað dvelur þig ljóð minna ljóða? Ljóðið stóra með stjörnublik í auga - visku á vör eld í æðum. Er vængur þinn særður? Í veröld þú nærð ekki flugi. Er það hatur og stríð í heimi - sem heftir för? Er það blæðandi und barns og móður - eða bergmálsvana hróp fangans? Frelsisins skerðing Réttar brot. Er það litleysi dags frá degi - eða draumvana nótt? Hvað dvelur þig ljóð minna ljóða með litverpa brá? Legg við hlustir. Lít ei langt yfir skammt. Enn syngur foss með fjallþungum kliði - enn grær blóm á bala björk í skógi - enn byggir fugl hreiður fiskur iðar í sjó. Meðan þögn býr í fjalli fegurð í línu og lit - meðan himinn minnist við haf - á streymir til óss - meðan stjarna vakir og sál tengist sál - átt þú ljóð minna ljóða sindrandi bjarta von - von um vængtak af heiðblárri tjörn sefans. Ef til vill leynist ljóðið stóra í lágróma kvaki fugls í mó.

---

Fjúk - Steingerður Guðmundssdóttir

Fjúk, Menningarsjóður, Reykjavík 1985.

Nánari upplýsingar um Steingerði Guðmundsdóttur er að finna í Skáldatali.

 

Ása Jóhanns