SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir21. mars 2019

Dagur ljóðsins - Þóra Jónsdóttir

Í DAG er dagur ljóðsins. Af því tilefni birtum við hér ljóð eftir eitt af okkar bestu samtímaskáldum, Þóru Jónsdóttur. Ljóð er úr bókinni Far eftir hugsun sem kom út árið 2000. FAR EFTIR HUGSUN - er til betri skilgreining á ljóði?

Fyrsta ljóðabók Þóru Jónsdóttur, Í leit að tjaldstæði, kom út árið 1973 og síðan hefur hún sent frá sér fjölda ljóðabóka. Heildarsafn ljóða hennar Landið í brjóstinu kom úr árið 2005.

EINS MANNS TJALD

Hver gerir sína vísu

Mitt albesta ljóð

verður ögrum skorið

þar gætir sjávarfalla

því særinn er hvergi langt undan

Mitt besta ljóð

ber keim af brenninsteini

úr heitum baðstofuhver                                                                                      Heildarsafn ljóða Þóru

er sprettur upp í bóli fólks

sem ræður illspáa drauma sína

á betri veg

Mitt besta ljóð

hripar undir hraun

birtist fjögurra gráðu lind

við hlið á eins manns tjaldi

Mitt besta ljóð

er blásin torfa á auðum sandi

og aðskilur landsfjórðunga

Ég horfði eitt sinn á eldana

renna hratt niður hlíðar Heklu

Land á frjósömum aldri

verður ljóð mitt