SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Ritstjórn22. september 2018

Aðalfundur Fjöruverðlaunanna 2018

Aðalfundur Fjöruverðlaunanna var haldinn 19. september 2018 að Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík. Á fundingum var nýtt merki Fjöruverðlaunanna kynnt en það var hannað var af Erlu Gerði Viðarsdóttur hjá Pipar\TBWA en hún er einnig hönnuður verðlaunaskjaldar Fjöruverðlaunanna. Einnig var sagt frá veglegri gjöf listakonunnar Koggu sem hefur ákveðið að styrkja verðlaunin árlega með því að gefa vinnu sína og efniskostnað við gerð verðlaunagripa.

Nýtt merki Fjöruverðlaunanna sem hannað var af Erlu Gerði Viðarsdóttur

Samkvæmt frétt félagsins stendur til að afhenda öll gögn Fjöruverðlaunanna til Kvennasögusafns Íslands og vinna betur í vefsíðu félagsins, birta þar t.d. upplýsingar um allar bækur sem tilnefndar hafa verið til Fjöruverðlaunanna til að auka sýnileika rithöfundanna og gefa út sérstaka útgáfu vefsíðunnar á ensku.

Einnig var sagt frá nýstofnuðum bókmenntaverðlaun kvenna í Ástralíu, Stella Prize, sem bætast við flóru bókmenntaverðlauna kvenna í heiminum, en svo best er vitað eru aðeins fyrir Fjöruverðlaunin á Íslandi og Women’s Prize for Fiction í Bretlandi. Fjöruverðlaunin skipa mikilvægan sess í íslenskum kvennabókmenntum og er gildi verðlaunanna fyrir konur á Íslandi og íslenskar bókmenntir ótvírætt.

 

Ása Jóhanns