SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Yrsa Sigurðardóttir

(Vilborg) Yrsa Sigurðardóttir er fædd í Reykjavík 24. ágúst 1963.

Hún varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1983, lauk B.Sc.-prófi frá Háskóla Íslands í byggingarverkfræði 1988 og M.Sc.-prófi í sömu fræðum frá Concordia University í Montreal í Kanada 1997. Yrsa starfar bæði sem byggingarverkfræðingur og við  ritstörf.

Yrsa sendi frá sér sína fyrstu barnabók, Þar lágu Danir í því, árið 1998. Árið 2000 hlaut hún Viðurkenningu Barnabókaráðs Íslands, Íslandsdeildar IBBY, fyrir bókina Við viljum jólin í júlí og 2003 hlaut hún Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir söguna Biobörn. Fyrsta skáldsaga Yrsu fyrir fullorðna, glæpasagan Þriðja táknið, kom út hjá bókaútgáfunni Veröld 2005. Ári síðar kom svo út sagan Sér grefur gröf þar sem lögfræðingurinn Þóra fæst við dularfull sakamál og síðan hafa fleiri sögur um Þóru bæst í hópinn. Síðan þá hefur Yrsa sent frá sér glæpasögu á svo til hverju ári og skipað sér fremst í flokk íslenskra höfunda á því sviði.

Útgáfuréttur bóka Yrsu hefur verið seldur til fjölmargra landa og hafa þær komið út í þýðingum víða um heim. 

Yrsa býr ásamt eiginmanni sínum á Seltjarnarnesi. Hún á tvö börn.


Ritaskrá

  • 2022  Gættu þinna handa
  • 2021  Lok, lok og læs
  • 2020  Herra Bóbó, Amelía og ættbrókin
  • 2020  Bráðin
  • 2019  Þögn
  • 2018  Brúðan
  • 2017  Gatið
  • 2016  Aflausn
  • 2015  Sogið  
  • 2014  DNA
  • 2013  Lygi
  • 2012  Kuldi
  • 2011  Brakið
  • 2010  Ég man þig
  • 2009  Horfðu á mig
  • 2008  Auðnin
  • 2007  Aska
  • 2006  Sér grefur gröf
  • 2005  Þriðja táknið
  • 2003  Biobörn
  • 2001  B 10
  • 2000  Barnapíubófinn, Búkolla og bókarránið
  • 1999  Við viljum jólin í júlí
  • 1998  Þar lágu Danir í því

 

Verðlaun og viðurkenningar

(í vinnslu)

  • 2021  Blóðdropinn fyrir Bráðina
  • 2015  Blóðdropinn fyrir DNA
  • 2011  Blóðdropinn fyrir Ég man þig
  • 2003  Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir Biobörn
  • 2000  Viðurkenning Barnabókaráðs Íslands, Íslandsdeildar IBBY fyrir Við viljum jólin í júlí

Tilnefningar

 

  • 2021  Til Blóðdropans fyrir Bráðina
  • 2021  Til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur fyrir Herra Bóbó, Amelía og ættbrókin
  • 2020  Til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Herra Bóbó, Amelía og ættbrókin
  • 2017  Til Blóðdropans fyrir Aflausn
  • 2011  Til Glerlykilsins, Norrænu glæpasagnaverðlaunin fyrir Ég man þig

 

 

Þýðingar

(í vinnslu)

  • 2022  Nukke (Tuuva-Hietala Tuula þýddi á finnsku)
  • 2022  Karpa na besílkíte (Elena Josheska þýddi á makedónsku)
  • 2022  Stilte (Willemien Werkman þýddi á hollensku)
  • 2022  Under sneen (Nanna Kalkar þýddi á dönsku)
  • 2022  Byttedyr (Sunneva Elvarsdóttir þýddi á norsku)
  • 2022  Diabelska lalka (Pawel Cichawa þýddi á pólsku)

 

 

Tengt efni