SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Unnur Sólrún

Unnur Sólrún fæddist á Vopnafirði 15. maí árið 1951 en ólst upp á Eskifirði frá 1956.

Unnur er með stúdentspróf frá MR og lauk fil.cand prófi í bókmenntasögu, hagsögu og sænsku frá háskólanum í Stokkhólmi. Unnur Sólrún lagði einnig stund á uppeldisfræði í Kennaraháskólanum auk þess sem hún hefur lokið ýmsum námskeiðum og kúrsum í gegnum árin, m.a. í háskólanum í Malmö.

Unnur hefur búið og starfað hvað lengst á Íslandi, ef frá eru talin háskólaárin. Hún starfaði aðallega sem kennari, bæði sem almennur kennari og sérkennari. Árið 2009 flutti Unnur til Svíþjóðar til framhaldsnáms og eftir það starfaði hún sem móðurmálskennari í grunn– og menntaskólum í Lundi í Svíþjóð.

Unnur er komin á eftirlaun og býr í Simrishamn í Svíþjóð. 

Hér má lesa viðtal við Unni um ljóðabók hennar sem kom út á sænsku 2019.


Ritaskrá

  • 2022  Arfleifð óttans
  • 2019  Ljus utan veke
  • 2019  Þæfðar vettlingavísur
  • 2011  All den tid som gått: diktsatta bilder till musik  
  • 2009  Lopaljóð í sauðalitunum  
  • 2008  Kærleikskitl – óbærileg lífshamingja  
  • 2006  Kurl
  • 2005  Sambúð  
  • 2002  Brjóstvasaljóð: Pocketpoems  
  • 2000  Orð sem vaka: ljóð og þættir  
  • 1996  Blómakarfan: tækifærisljóð í gjafakortaformi.  
  • 1994  Maríutásur í bandaskóm  
  • 1991  Fyrir utan gluggannn  
  • 1971  Er á þetta lítandi  

 

Að auki hafa ljóð eftir Unni birst í safnritum, blöðum og tímaritum í tímans rás.

Tengt efni