SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Unnur Guttormsdóttir

Unnur Guttormsdóttir fæddist 18. október 1941 í Reykjavík.

Unnur er menntuð sem sjúkraþjálfari og er einn af stofnendum og leikskáldum Hugleiks, áhugaleikfélags í Reykjavík.

Ásamt Önnu Kristínu Kristjánsdóttur samdi hún Ofleikinn Sagan um Svein sáluga Sveinsson í Spjör og samsveitunga hans sem frumsýndur var 1991 og Óleikinn Ég bera menn sá sem frumsýndur var tveimur árum síðar; í báðum tilvikum af Hugleikurum.

Unnur og Anna Kristín sömdu einnig handrit að stuttmyndinni Það er víst óskaplega fallegt hérna (1992) fyrir Ferðafélag Íslands en myndin fjallar um gönguferð í þoku á Hornströndum undir stjórn Sigrúnar Valbergsdóttur. 

Í samvinnu við aðra höfunda hefur Unnur skrifað fjölda leikrita fyrir Hugleik, eins og sjá má á ritaskrá.

Unnur hefur einnig samið og leikstýrt stuttmyndunum Hver unir glaður við sitt (1989) og Lyndisglaður leik ég mér, þroskasögu þriggja barna (1992). 

Árið 1995 skrifaði Unnur gamansama leikþáttinn Fjötur um fót ásamt Önnu Kristínu Kristjánsdóttur og Fríðu B. Andersen en fyrir hann hlutu þær fyrstu verðlaun í leikritasamkeppni sem Sjálfsbjörg í Reykjavík, Halaleikhópurinn og Samband íslenskra sveitarfélaga efndu til. Leikþátturinn var ætlaður til upplýsingar og fræðslu um aðgengis- og ferlimál fatlaðra. Verkið segir frá Fal Atla, sem er fatlaður í hjólastól, og stórfurðulegri martröð hans um Fatlavík. Athygli áhorfenda var vakin á öllum þeim fjölda hindrana sem blasa við hreyfihömluðum í daglegu lífi þeirra, jafnframt því sem reynt var að vekja fólk til vitundar um að þarfir fatlaðra eru þær sömu og allra annarra, sem sagt samneyti við aðrar manneskjur á jafnréttisgrundvelli.

Árið 2011 kom út fyrsta ljóðabók Unnar, Það kviknar í vestrinu, sem hefur að geyma ljóðminningar frá björtum sumrum í sveitinni í Grundarfirði. Ljóð eftir Unni hafa einnig birst í ljóðabókum ljóðahóps sem kenndur er við Gjábakka í Kópavogi auk þess sem bernskuminningar eftir hana má finna í bókinni Send í sveit.


Ritaskrá

Skáldverk

  • 2021  Oft eru gamlir hrafnar ernir
  • 2011  Það kviknar í vestrinu

 

Leikrit

  • 1986  Sálir Jónanna (ásamt Ingibjörgu Hjartardóttur og Sigrúnu Óskarsdóttur)
  • 1987  Ó, þú.... (ásamt Ingibjörgu Hjartardóttur og Sigrúnu Óskarsdóttur)
  • 1988  Um hið átakanlega og dularfulla hvarf ungu brúðhjónanna Indriða og Sigríðar daginn eftir brúðkaupið og leitina af þeim (ásamt Hjördísi Hjartardóttur, Ingibjörgu Hjartardóttur og Sigrúnu Óskarsdóttur)
  • 1991  Sagan um Svein sáluga Sveinsson í Spjör og samsveitunga hans (ásamt Önnu Kristínu Kristjánsdóttur).
  • 1993  Ég bera menn sá (ásamt Önnu Kristínu Kristjánsdóttur)
  • 1995  Fjötur um fót (ásamt Önnu Kristínu Kristjánsdóttur og Fríðu B. Andersen)
  • 1999  Ellismellur (ásamt Önnu Kristínu Kristjánsdóttur, Fríðu B. Andersen, Ingibjörgu Hjartardóttur og Sigrúnu Óskarsdóttur)
  • 2015  Stóra hangikjöts-, Orabauna- og rófumálið: Taðreyktur sakamálstryllir (ásamt Önnu Kristínu Kristjánsdóttur og Sigrúnu Óskarsdóttur)

 

Handrit að stuttmyndum

  • 1989  Hver unir glaður við sitt
  • 1992  Lyndisglaður leik ég mér. Þroskasaga þriggja barna 
  • 1992  Það er víst óskaplega fallegt hérna (ásamt Önnu Kristínu Kristjánsdóttur)

 

Verðlaun og viðurkenningar

  • 1995  Fyrstu verðlaun í leikritasamkeppni Sjálfsbjargar fyrir Fjötur um fót (ásamt Önnu Kristínu Kristjánsdóttur og Fríðu B. Andersen)