Soffía Bjarnadóttir fæddist í Reykjavík 12. maí árið 1975. Fyrsta skáldsaga hennar Segulskekkja kom út haustið 2014 og í franskri þýðingu árið 2016. Soffía er með MA próf í alm. bókmenntafræði frá HÍ og einnig MA próf í ritlist. Jafnframt hefur hún lagt stund á leikhúsfræði við Kaupmannahafnarháskóla.
Soffía hefur alið tvö börn og síðastliðin ár hefur hún starfað við ritstörf, ritstýrt sem og tekið að sér ýmis konar kennslu í sköpun og ritlist. Eftir Soffíu hafa jafnframt komið út tvær ljóðabækur: Beinhvít skurn árið 2015 og Ég er hér árið 2017. Einnig hefur hún tekið þátt í ýmsum samstarfsverkefnum og eftir hana hafa birst greinar, hugleiðingar, prósar og ljóð í tímaritum og safnritum.
Þá hefur Soffía skrifað leikritið Dreptu mig aftur, elskan undir handleiðslu Sigurðar Pálssonar en verkið var í þróun í höfundasmiðju Leikskáldafélags Íslands og Þjóðleikhúss árið 2012. Leikþátturinn Lúsí fer frá mér var fluttur á Uppsprettunni í Tjarnarbíói í september 2014.
Árið 2016 tók hún þátt í listahátíðinni Les Boréales Festival í Frakklandi, sem höfundur frá Íslandi.
Soffía Bjarnadóttir
- 2019 Hunangsveiði
- 2017 Ég er hér
- 2015 Ég erfði dimman skóg – ljóðverk
- 2015 Beinhvít skurn
- 2014 Segulskekkja
- 2016 Viðurkenning fyrir ljóðið „Ég er hér“. Ljóðstafur Jóns úr Vör.
- 2014 Rauða hrafnsfjöðrin fyrir skáldsöguna Segulskekkja.
- 2012 Nýræktarstyrkur Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir skáldsöguna: Segulskekkja