SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir

Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir fæddist í Reykjavík 1951 og ólst þar upp.

Hún lauk stúdentsprófi frá MH og BA-prófi í félagsvísindum frá St. Mary of the Woods í Indiana 1981. Hún hefur meðal annars setið í stjórn Hvatar, félags Sjálfstæðiskvenna í Reykjavík, dómnefnd bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar og stjórn Félags íslenskra sérkennara.

Ragnhildur Pála hefur búið m.a. í Los Angeles, Bifröst og nú í Vesturbænum. Hún giftist 12.10.1974 Vilhjálmi Egilssyni,  fyrrverandi alþingismanni, framkvæmdastjóra Verslunarráðs Íslands og fyrrverandi rektor á Bifröst. Eiga þau fimm börn. 

Á 20 ára tímabili sendi Ragnhildur Pála frá sér fjórar ljóðabækur. Sum ljóð  hennar eru trúarlegs eðlis, helgikvæði og hymnar, en Ragnhildur Pála er kaþólskrar trúar. Önnur hafa yfir sér erótískan blæ.  Algengt þema er tengsl manns og Guðs. Ljóð hennar hafa birst í blöðum og tímaritum, m.a. Skírni

 


Ritaskrá

  • 1989  Faðmlag vindsins
  • 1989  Stjörnurnar í hendi Maríu
  • 1987  Andlit í bláum vötnum
  • 1970  Hvísl

Tengt efni