SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Margrét Lóa Jónsdóttir

Margrét Lóa Jónsdóttir er fædd 29. mars árið 1967. Undanfarna áratugi hefur hún helst fengist við skáldskap og kennslu. Fyrsta verk hennar, ljóðabókin Glerúlfar, kom út árið 1985. Hún hefur m.a. fengist við kennslu í skapandi skrifum og þáttagerð hjá RÚV. Jafnframt ritstýrði hún listatímaritinu Andblæ um tveggja ára skeið, frá árinu 1998-2000.

Margrét Lóa tók þátt í Bókmenntahátíð í Reykjavík árið 2000. Árið 2003 kom út geisladiskurinn Hljómorð með ljóðum hennar og tónlist eftir Gísla Magnússon.

Haustið 2001 var þeim boðið á bókamessuna í Gautaborg til að kynna diskinn. Árið 2008 tók Margrét Lóa þátt í alþjóðlegri bókmenntahátíð í borginni Granada í Níkaragva. Einnig tók hún þátt í vinnubúðum í ljóðaþýðingum haustið 2012 í Galisíu.Síðast liðin ár hefur hún fengist töluvert við ljóðaþýðingar, sér í lagi úr spænsku.

Auk 10 ljóðabóka, hljómdisks og skáldsögu, hefur Margrét Lóa starfrækt listagalleríið Marló og bókaútgáfu undir sama nafni. Þá fæst hún einnig við myndlist og hönnun bókverka. Margrét Lóa hlaut viðurkenningu frá Bókasafnssjóði fyrir ritstörf árið 2002 og frá Fjölíssjóði Rithöfundasambands Íslands árið 2005.


Ritaskrá

  • 2021  Draumasafnarar
  • 2017  Biðröðin framundan
  • 2017  50 sinnum kringum sólina
  • 2015  Frostið inni í hauskúpunni
  • 2005  Tímasetningar
  • 2004  Laufskálafuglinn
  • 2003  Hljómorð
  • 2002  Ljóð í Cold Was That Beauty
  • 2001  Háværasta röddin í höfði mínu
  • 1997  Ljóðaást
  • 1996  Tilvistarheppni
  • 1991  Ávextir
  • 1989  Orðafar
  • 1986  Náttvirkið
  • 1985  Glerúlfar

 

Verðlaun og viðurkenningar

  • 2005  Styrkur úr Fjölíssjóði Rithöfundasambands Íslands
  • 2005  Styrkur úr Bókasafnssjóði fyrir ritstörf