Kristín Ómarsdóttir er fædd 24. september 1962 í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá Flensborg í Hafnarfirði 1981 og stundaði síðan nám í íslensku, almennri bókmenntafræði og spænsku við Háskóla Íslands. Kristín hefur dvalist í Kaupmannahöfn og Barcelona en býr nú og starfar í Reykjavík.
Kristín hefur jöfnum höndum fengist við ljóða- og skáldsagnagerð, smásögur og leikritun. Hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín. Skáldsagan Elskan mín ég dey tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 1999 og leikrit hennar, Ástarsaga 3, var tilnefnt til Norrænu leikskáldaverðlaunanna. Árið 2005 fékk hún Grímuverðlaunin, sem leikskáld ársins, fyrir leikritið Segðu mér allt. Fyrir ljóðabókina Sjáðu fegurð þína hlaut hún Fjöruverðlaunin í flokki fagurbókmennta árið 2008. Kristín hefur einnig unnið að myndlist, sýnt teikningar sínar og tekið þátt í sýningum þar sem hún hefur unnið með ólík form: myndbönd og skúlptúra.
Bækur eftir Kristínu hafa verið þýddar á sænsku, frönsku og finnsku og ljóð hennar hafa birst í erlendum safnritum.
Forlag: Partus Press
Kristín Ómarsdóttir
- 2019 Svanafólkið
- 2017 Kóngulær í sýningargluggum
- 2015 Flækingurinn
- 2015 Gjöf mín, yðar hátign, Stjörnur / Audition; My Gift, Your Excellency; Stars
- 2014 Tell me more
- 2013 Ljóð í leiðinni: skáld um Reykjavík
- 2013 Elífar speglanir: vísindalegar athuganir
- 2012 Milla
- 2011 Í speglinum sefur kóngur
- 2011 Við tilheyrum sama myrkrinu – af vináttu: Marilyn Monroe og Greta Garbo
- 2009 Hjá brúnni
- 2008 Sjáðu fegurð þína
- 2006 Jólaljóð
- 2005 Segðu mér allt
- 2005 Spítalaskipið
- 2004 Hér
- 2003 Afmælistertan
- 2003 Inn og út um gluggann / in and out the window
- 2003 Vinur minn heimsendir
- 2001 Tvær sögur
- 2001 Hamingjan hjálpi mér I og II
- 2000 Margar konur
- 2000 Sérstakur dagur
- 1998 Lokaðu augunum og hugsaðu um mig
- 1997 Ástarsaga 3 : lovestory #3
- 1997 Elskan mín ég dey
- 1996 Margrét mikla
- 1995 Dyrnar þröngu
- 1993 Þerna á gömlu veitingahúsi
- 1993 Vi kommer att svara i Eran telefon - Við munum svara í síma yðar
- 1992 Svartir brúðarkjólar
- 1991 Einu sinni sögur
- 1990 Hjartatrompet
- 1990 Lísa, Lísa
- 1989 Í ferðalagi hjá þér
- 1987 Demantstorgið
- 1987 Í húsinu okkar er þoka
- 1985 Draumar á hvolfi
- 2018 Maístjarnan: Kóngulær í sýningarglugganum
- 2009 Fjöruverðlaunin: Sjáðu fegurð þína
- 2005 Gríman; Leikskáld ársins: Segðu mér allt
- 1998 Menningarverðlaun DV: Elskan mín ég dey
- 1997 Viðurkenning Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins
- 1985 Fyrstu verðlaun í samkeppni Þjóðleikhússins í tilefni loka kvennaáratugarins: Draumar á hvolfi
Tilnefningar
- 2219 Fjöruverðlaunin: Svanafólkið
- 2017 Íslensku bókmenntaverðlaunin: Kóngulær í sýningargluggum
- 2015 Menningarverðlaun DV : Flækingurinn
- 2012 Íslensku bókmenntaverðlaunin: Milla
- 2011 Útvarpsverðlaun Grímunnar: Í speglinum sefur kónguló
- 2008 Menningarverðlaun DV: Sjáðu fegurð þína
- 2008 Útvarpsverðlaun Grímunnar: Smásögur
- 2001 Norrænu útvarpsleikritaverðlaunin: Margrét mikla
- 2000 Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs: Elskan mín ég dey
- 1999 Menningarverðlaun DV: Lokaðu augunum og hugsaðu um mig
- 1998 Norrænu leikskáldaverðlaunin: Ástarsaga 3
- 1997 Íslensku bókmenntaverðlaunin: Elskan mín ég dey
- 1995 Íslensku bókmenntaverðlaunin: Dyrnar þröngu