SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Guðrún Brjánsdóttir

Guðrún Brjánsdóttir er fædd árið 1995 í Reykjavík.

Guðrún lauk stúdentsprófi frá fornmáladeild Menntaskólans í Reykjavík vorið 2015 og hóf þá nám í íslensku með ritlist sem aukagrein við Háskóla Íslands. Hún hefur lokið framhaldsprófi í píanói og einsöng frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og lagði stund á söngnám samhliða íslenskunáminu.

Guðrún hefur birt ljóð og smásögur á ýmsum vefmiðlum, meðal annars á Eólan dúrar og Norden i Skolen. Í desember 2016 hlaut hún fyrstu verðlaun í ljóðasamkeppni Mímis, félags íslensku- og málvísindanema, fyrir ljóð sitt Orðin.

Fyrsta ljóðabók Guðrúnar, Skollaeyru, kom út þann 15. desember 2017 og fyrsta skáldsaga hennar, Óbragð, kom út 2022.

 


Ritaskrá

  • 2022  Óbragð
  • 2020  Sjálfstýring
  • 2017  Skollaeyru

 

Verðlaun og viðurkenningar

  • 2020  Verðlaun fyrir söguna Sjálfstýring í samkeppninni Nýjar raddir

 

Þýðingar

  • 2023  Sólgarðurinn eftir Beini Bergsson
  • 2019  Litli drengurinn og beinagrindin eftir Beini Bergsson

 

Tengt efni