Eva Björg Ægisdóttir er fædd árið 1988 á Akranesi þar sem hún ólst upp og nýtir hún sér innsýn sína í smábæjarlífið í bókum sínum.
Eva Björg hefur fengist við skriftir frá unga aldri og á unglingsaldri hlaut hún verðlaun í smásagnasamkeppni. Hún kom fyrst fram á sjónarsvið íslenskra lesenda árið 2018 þegar hún sigraði í samkeppninni Svartfuglinn þar sem nýir höfundar geta sent inn handrit að glæpasögu. Það voru glæpasagnahöfundarnir Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson sem stofnuðu til verðlaunanna í samvinnu við bókaforlagið Veröld.
Verðlaunaverk Evu Bjargar, Marrið í stiganum, gerist á Akranesi og þar kynnist lesandinn rannsóknarlögreglukonunni Elmu og aðstoðarmanni hennar, Sævari. Í annarri bókinni, Stelpur sem ljúga, sem kom út árið 2019, er sama teymi á ferðinni og má kalla bókina sjálfstætt framhald af þeirri fyrstu.
Nýverið kom Marrið í stiganum út í enskri þýðingu Victoriu Cribb og nefnist The creak on the stairs.
Eva Björg býr núna í vesturbænum í Reykjavík, ásamt manni sínum og þremur börnum.
Eva Björg Ægisdóttir
- 2020 Næturskuggar
- 2019 Stelpur sem ljúga
- 2018 Marrið í stiganum
- 2020 Íslensku hljóðbókaverðlaunin: Marrið í stiganum
- 2018 Svartfuglinn: Marrið í stiganum