SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Didda

Didda (Sigurlaug Jónsdóttir) fæddist á Selfossi 29. nóvember 1964. Eftir tveggja vikna dvöl þar fluttist hún til Reykjavíkur þar sem hún ólst upp.

Didda kannaði fjölmarga grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu og lá leið hennar síðan í Fjölbraut Suðurlands á Selfossi og svo í Menntaskólann v/Hamrahlíð. Árin 1987-1989 stundaði Didda nám í Cordwainers Technical College í London og útskrifaðist þaðan með próf í tösku- og veskjagerð og ber að nefna að hún er ein á Íslandi með þetta próf.

Á níunda áratugnum samdi Didda texta fyrir ýmsar hljómsveitir. Frægastur er vafalaust textinn við lagið Ó, Reykjavík, ó, Reykjavík sem hljómsveitin Vonbrigði flutti. Hún hefur einnig komið fram sem söngkona við örfá tækifæri og lék aðalhlutverkið í kvikmynd Sólveigar Anspach, Stormviðri, sem var frumsýnd 2003. Fyrir það hlutverk hlaut Didda Edduverðlaunin sama ár sem leikkona ársins.

Fyrsta bók Diddu, ljóðabókin Lastafans og lausar skrúfur, kom út árið 1995 og vakti mikla athygli. Síðan hefur hún sent frá sér tvær skáldsögur og fleiri verk. Þá hefur hún birt ljóð í ýmsum tímaritum, innlendum og erlendum.

Didda bjó í London 1997-1998, söðlaði síðan um og fór til Kúbu þar sem hún dvaldi í eitt ár.

Frá árinu 1999 hefur Didda búið í Reykjavík ásamt sonum sínum tveimur og fengist við margvísleg störf meðfram ritstörfum.


Ritaskrá

  • 2021  Hamingja
  • 1999  Gullið í höfðinu : hetjusaga
  • 1997  Erta
  • 1995  Lastafans og lausar skrúfur

 

Einnig hafa birst ljóð og greinar eftir Diddu í ýmsum tímaritum.

 

Verðlaun og viðurkenningar

  • 2003  Edduverðlaun sem leikkona ársins í kvikmyndinni Stormviðri (Stormy weather)

 

Tengt efni