Anna Svanhildur Björnsdóttir fæddist í Reykjavík þann 30. nóvember 1948. Foreldrar hennar voru Hulda M. Kristjánsdóttir og Björn M. Björnsson. Hún ólst upp í vesturbæ Reykjavíkur, næstelst fjögurra systkina, en svo fluttist fjölskyldan inn í Laugarnes.
Anna lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1969 og fluttist síðan til Hólmavíkur í tvö ár með fyrri eiginmanni sínum, Erni Ásbjarnarsyni og eignuðust þau synina Ásbjörn Sírni Arnarson f. 19.9 1970 og Starkað Örn Arnarson f. 16.8.1972. Anna og Örn skildu og flutti Anna með syni sína á Lýsuhól í Staðarsveit á Snæfellsnesi í einn vetur.
Anna vann síðan áfram við kennslustörf í Reykjavík og giftist árið 1979 Einari Aðalsteinssyni frá Akureyri f. 19.6.1941 – d. 9.7.1998. Þeirra börn eru Sólveig Krista Einarsdóttir f. 14.2.1980 og Einar Hlér Einarsson f. 23.6.1982. Anna hefur kennt víðar, meðal annars á Húsavík.
Anna var greinahöfundur á Vikunni 1992–1995. Hún fór að yrkja ljóð og birta í blöðum og tímaritum árið 1985 og 1988 kom út fyrsta ljóðabók hennar, Örugglega ég. Hún hefur síðan sent frá sér fjölda ljóðabóka.
Anna hefur haldið og tekið þátt í ljóðadagskrám hérlendis og erlendis, mest á Norðurlöndum. Mörg ljóða henna hafa verið þýdd á dönsku, sænsku og ensku. Þrjár ljóðabóka hennar hafi komið út í tvímála útgáfum, á dönsku og íslensku: Mens solen stadig er fremme / Meðan sól er enn á lofti (2003), Virkelig mig / Örugglega ég (2008) og Mindernes hotel / Hótel minninganna (2014).
Anna hefur sótt rithöfundaþing víða erlendis, fengið nokkrar viðurkenningar og á ljóð í fjölda safnrita.
Anna hefur verið félagi í Rithöfundasambandi Íslands frá 1991 og er meðlimur í Ritlistarhópi Kópavogs.
Anna býr í Reykjavík.
Anna S. Björnsdóttir
- 2018 Farvegir
- 2016 Sólsetursstræti
- 2014 Hótel minninganna
- 2012 Okkar Paradís
- 2010 Draumar eru lengi að rætast
- 2005 Á blágrænum fleti
- 2004 Yfir hæðina
- 2001 Meðan sól er enn á lofti
- 1998 Hægur söngur í dalnum
- 1996 Í englakaffi hjá mömmu
- 1993 Skilurðu steinhjartað
- 1991 Blíða myrkur
- 1990 Strendur
- 1988 Örugglega ég
- 2010 - Steinninn, heiðursviðurkenning Ritlistarhóps Kópavogs
- 1999 - Máttarstólpinn, menningarverðlaun Grafarvogs (ásamt fleiri skáldum)
- 1995 - Grand Prix de lan Francofonie
- 1994 - Grand Prix de la Francofonie hjá A.P.P.E.L. í Frakklandi
- 1993 - Ljóðaverðlaun Jean Monnet