SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Alda Björk Valdimarsdóttir

Alda Björk Valdimarsdóttir er fædd 2. febrúar árið 1973 í Reykjavík.

Alda er með doktorspróf í almennri bókmenntafræði og er prófessor í greininni við Háskóla Íslands. Meðal helstu rannsóknarverkefna hennar eru enskar nítjándualdar bókmenntir með sérstakri áherslu á skáldverk Jane Austen, endurvinnslu menningararfsins í samtímanum, hliðarsögur, endurritanir og aðlaganir og fjallaði doktorsritgerð hennar um það efni.

Alda Björk hefur jafnframt rannsakað íslenskar samtímabókmenntir og birt fjölda greina um þær. 2008 kom út bók hennar Rithöfundur Íslands. Skáldskaparfræði Hallgríms Helgasonar og 2011 kom út bókin Hef ég verið hérna áður? Skáldskapur Steinunnar Sigurðardóttur sem Alda skrifaði ásamt Guðna Elíssyni.

Alda Björk gaf út fyrstu ljóðabók sína Við sem erum blind og nafnlaus árið 2015. Þá hafa ljóð eftir hana birst í Tímariti Máls og menningar, Són, Ritinu og  Stínu.

 


Ritaskrá

  • 2022  Við lútum höfði fyrir því sem fellur
  • 2018  Jane Austin og ferð lesandans
  • 2015  Við sem erum blind og nafnlaus
  • 2011  Hef ég verið hér áður? Skáldskapur Steinunnar Sigurðardóttur (meðhöfundur Guðni Elísson)
  • 2008  Rithöfundur Íslands. Skáldskaparfræði Hallgríms Helgasonar
  • 2006  Kvikmyndastjörnur (safn þýddra fræðigreina með inngangi Öldu)