Þórunn Jarla Valdimarsdóttir er fædd 25. ágúst 1954 og er Reykvíkingur. Hún lærði sagnfræði í Lundi Svíþjóð árið 1973-1974 og sögu og myndlist við Instituto Allende í Mexíkó árið 1977-1978. Hún lauk Cand Mag-prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands 1983 og hefur síðan fengist við ritstörf. Eftir hana liggja tuttugu bækur – skáldsögur, ljóðabækur, ævisögur og sagnfræðirit – auk fjölda greina og þátta fyrir útvarp og sjónvarp. Barnævisöguna Sól í norðurmýri (1993) og nóvelluna Dag kvennanna (2010) skrifaði hún með Megasi.
Fyrsta skáldsaga Þórunnar, Höfuðskepnur, kom út árið 1994. Skáldsagan Alveg nóg var tilnefnd til Menningarverðlauna DV 1997 og Stúlka með fingur hlaut síðan Menningarverðlaun DV árið 1999 og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2001. Skáldsögur Þórunnar Kalt er annars blóð (2007) og Mörg eru ljónsins eyru (2010) eru glæpasögur sem gerast í samtímanum en byggja báðar á Íslendingasögum, sú fyrri á Njálu og sú seinni á Laxdælu. Þær voru báðar tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fagurbókmennta, en Þórunn hefur einnig hlotið þar tilnefningar í flokki fræðibóka fyrir bækurnar Snorra á Húsafelli: saga frá 18. öld (1989), Til móts við nútímann (4. bindi Kristni á Íslandi, 2000) og Upp á sigurhæðir: saga Matthíasar Jochumssonar (2006).
Þórunn er búsett í Reykjavík.
Þórunn Jarla Valdimarsdóttir
2018 Skúli fógeti: Faðir Reykjavíkur - saga frá átjándu öld
2018 Villimaður í París
2015 Stúlka með höfuð
2013 Stúlka með maga
2010 Dagur kvennanna. Ástarsaga (ásamt Megasi)
2010 Mörg eru ljónsins eyru
2010 Antennae Scratch Sky (scratch scratch)
2008 Loftnet klóra himin
2007 Kalt er annars blóð
2006 Upp á sigurhæðir ævisaga Matthíasar Jochumssonar
2002 Horfinn heimur: Árið 1900 í nærmynd
2001 Hvíti skugginn
2000 Engin venjuleg kona; litríkt líf Sigrúnar Jónsdóttur kirkjulistakonu
2000 Kristni á Íslandi 4. bindi 2000 (fyrri hluti bókarinnar)
1999 Stúlka með fingur
1997 Alveg nóg
1997 Leikfélag Reykjavíkur: Aldarsaga (fyrri hluti bókarinnar)
1994 Höfuðskepnur: ástarbréfaþjónusta
1993 Sól í Norðurmýri: píslarsaga úr Austurbæ (æskusaga Megasar)
1992 Júlía
1991 Fuglar
1989 Snorri á Húsafelli: saga frá 18. öld
1986 Sveitin við sundin: búskapur í Reykjavík 1870-1950
1986 Af Halamiðum á Hagatorg (ævisaga Einars Jónssonar í Lækjarhvammi)