SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir27. janúar 2024

ENN BÆTIST VIÐ SKÁLDATALIÐ - Guðný Anna Annasdóttir

Guðný Anna Annasdóttir hefur bæst við sístækkandi Skáldatalið okkar. Hún hefur sent frá sér 13 barnabækur og kom sú fyrsta út árið 2020. Flestar fjalla þær um Lindísi og Ljóna og eru einkum ætlaðar börnum á leikskólaaldri.

Bókaforlagið Gudda Creative gefur bækurnar út en hér má nálgast síðu forlagsins og skoða fjölbreytt úrvalið.