SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir26. janúar 2024

FÍFA OG GRÁTVÍÐIR

Fífa Larsen hefur nú bæst við Skáldatalið en hún sendi frá sér sína fyrstu skáldsögu í fyrra. Sagan nefnist Grátvíðir og er kynnt svo, á vef Forlagsins:

Jóhanna, íslensk kona búsett á Norður-Ítalíu, lifir einföldu og kyrrlátu lífi ásamt syni sínum og ítölskum tengdaföður. Dag nokkurn ber að garði lögreglumanninn Roberto Farro sem rannsakar lát konu þar í grenndinni – hann hefur engar vísbendingar aðrar en að símanúmer Jóhönnu finnst hjá hinni látnu. Hver er þessi kona og hvernig tengist hún Jóhönnu?

Jóhanna dregst þannig ófús inn í rannsókn málsins sem berst um Ítalíu endilanga og allt til Sikileyjar. Fyrr en varir er hafin óvænt og örlagarík atburðarás. Nístandi fjölskylduleyndarmál leita dagsljóssins og á milli Jóhönnu og Robertos kvikna sterkar enndir sem þau kunna varla að bregðast við.

Fífa Larsen bjó um árabil á slóðum sögunnar og þekkir vel litróf ítalskrar þjóðarsálar.