SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir23. júní 2023

NÝ SPENNUSAGA eftir Unni Lilju

Unnur Lilja Aradóttir hlaut Svartfuglinn fyrir Höggið fyrir tveimur árum en það eru verðlaiun sem ætluð eru höfundum sem hafa ekki áður sent frá sér glæpasögu. Nú hefur hún sent frá sér nýja bók sem heitir Utangarðs. og er gríðarlega spennandi! Á vef BjartsVeraldar segir um söguþráðinn:

Eftir 27 ár neyðist Júlía til að halda aftur heim á æskuslóðirnar. Tilefnið er andlát ömmu hennar; ömmunnar sem ól hana og bróður hennar upp á tilfinningalausan og kaldlyndan hátt. Sem unglingum var Júlíu og bróður hennar útskúfað úr þessu litla samfélagi og hún kemst fljótlega að því að það hefur ekkert breyst – þau eru enn talin hafa hafa framið alvarlega glæpi. En smám saman raðast minningabrotin saman og úr verður mynd sem hefur mikil áhrif á lífið í smábænum.

Mynd: BjarturVeröld

Tengt efni