SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir17. mars 2021

Útgáfuhóf - Kona fer í gönguferð

Í tilefni af útgáfu ljóðabókarinnar Kona fer í gönguferð eftir Hönnu Óladóttur verður blásið til útgáfuhófs í Bókabúð Forlagsins, Fiskislóð 39 á morgun, fimmtudaginn 18. mars kl. 16:30.

Í kynningu segir um bókina:

Kona sem komin er í öngstræti í lífi sínu fær tilboð sem hún getur ekki hafnað: Gönguferð eftir hinum heilaga Jakobsvegi á Spáni, leið sem fólk hefur gengið öldum saman í leit að innri ró og svörum við knýjandi spurningum. Ferðin verður henni lærdómsrík og beinir huganum á óvæntar brautir.

Laufléttar veitingar í boði.