SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir 8. október 2020

Orlandó skeggrædd

 

Sunnudaginn 11. október verður skáldsagan Orlandó eftir Virginiu Woolf rædd í Bókmenntaklúbbi Samtakanna '78, frá kl. 15-17. Sagan kom út árið 1928 á frummálinu og árið 2017 í íslenskri þýðingu Soffíu Auðar Birgisdóttur.

Líkt og kemur fram í  viðburðinum á Facebook þá er bókmenntaklúbburinn gott tækifæri fyrir áhugafólk um bókmenntir til að koma saman til að lesa og ræða um bækur sem snerta á hinsegin tilveru.

Öll eru velkomin og er engin formleg reynsla af bókmenntalestri þörf.