SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir16. mars 2021

Kallað eftir nýjum leikverkum

Þjóðleikhúsið kallar eftir nýjum leikverkum, hvort heldur sem er fullbúnum verkum eða vel útfærðum hugmyndum, með sýnishorni af leiktexta. Í ár er lögð sérstök áhersla á frumsamin leikverk eftir konur og sömuleiðis verk sem fjalla með einhverjum hætti um fjölbreytileika og fjölmenningu. Það útilokar þó á engan hátt önnur áhugaverð verk eða hugmyndir.

Innsendu leikverki/hugmynd skal fylgja stutt lýsing, 1-2 bls., þar sem fram kemur persónufjöldi, atburðarás og ætlunarverk höfundar. Einnig skal fylgja stutt ferilskrá höfundar. Höfundar af öllum kynjum og mismunandi uppruna eru hvattir til að senda inn leikverk og verða höfundarlaun greidd samkvæmt samningi Þjóðleikhússins við Rithöfundasamband Íslands.

Á síðasta leikári kallaði Þjóðleikhúsið eftir barnaleikritum og keypti sýningarréttinn að tveimur af þeim 150 verkum sem bárust, auk þess sem sex önnur voru valin til áframhaldandi vinnslu og skoðunar.

Einnig var kallað eftir nýjum íslenskum verkum til flutnings í Hádegisleikhúsinu og bárust 247 ný íslensk verk. Fjögur þeirra voru valin til sýninga, auk þess sem leikhúsið tryggði sér sýningarrétt á þremur verkum til viðbótar.

Nánari upplýsingar má nálgast með fyrirspurn á tölvupóstfangið leikritun@leikhusid.is. Umsóknarfrestur er til og með þriðjudagsins 6. apríl 2021.