SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir24. nóvember 2020

Fyrsta bók Hjördísar Kvaran

Hjördís Kvaran Einarsdóttir hefur sent frá sér sína fyrstu ljóðabók, sem ber titilinn URÐ.

Hjördís hefur áður birt ljóð sín í litlum ljóðaheftum og á netinu og því eru það mikil tímamót að sjá ljóð sín á prenti á bók.

Ljóðin í URÐ eru samin á um það bil 30 ára tímabili, víðsvegar á Íslandi og erlendis.

Bókin er einnig prýdd skemmtilegum myndum eftir Pétur Baldvinsson, sem líka á heiðurinn af hönnun bókarinnar.

URÐ skiptist í þrjá hluta sem heita: ENGINN - RÆÐUR - FÖR sem kannski má segja að myndi saman nokkurs konar undirtitil bókarinnar.

Skáld.is óskar Hjördísi til hamingju með bókina og býður hana velkomna í skáldatalið.

Titilljóð bókarinnar:

 

URÐ

 

Það eru líkur á

að þú finnir mig

á meðal burt floginna blóma

sem döguðu uppi

að morgni tilveru sinnar.

 

Söm urðu örlög ástar minnar

þeirrar sem hreifst,

vegna tilurðar þinnar,

en dó sökum veruleikans

sem fól í sér uppgjör

tveggja ólíkra sálna.

 

Aðeins hún var til

á miðnætti lífsins

og beið dögunar.