- Soffía Auður Birgisdóttir
Fræðikonur í Gunnarshúsi 15. nóvember
Annað kvöld, 15. nóvember, verða fræðikonurnar Guðrún Ingólfsdóttir, Guðrún Steinþórsdóttir og Ólína Þorvarðardóttir í Gunnarshúsi, á Dyngjuvegi 8 í Reykjavík, að kynna nýútkomnar bækur sínar. Þar munu aðrar fræðikonur, Guðrún Nordal, Sigrún Margrét Guðmundsdóttir og Silja Aðalsteinsdóttir ræða við höfunda um verk þeirra.
Bækurnar sem kynntar verða eru:

Guðrún Ingólfsdóttir: Skáldkona gengur laus. Erindi 19. aldar skáldkvenna við heiminn. -- Guðrún Nordal ræðir við nöfnu sína um verkið. "Í bókinni er fjórum skáldkonum frá 19. öld sleppt lausum úr handritageymslu Þjóðarbókhlöðunnar" segir á bókarkápu.
Guðrún Steinþórsdóttir: Raunveruleiki hugans er ævintýri. Doktorsritgerð um verk Vigdísar Grímsdóttur þar sem fjallað er um valdar sögur, einkenni þeirra og viðtökur í ljósi hugrænnar bókmenntafræði. -- Sigrún Margrét Guðmundsdóttir ræðir við Guðrúnu.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir: Ilmreyr. Móðurminning. -- Silja Aðalsteinsdóttir ræðir við Ólínu sem einnig mun lesa úr bókinni. Ilmreyr er sjálfsævisögulegt verk um líf, ástir og örlög fjögurra kynslóða í ættlegg höfundar.
Viðburðurinn hefst kl. 20 og í boði eru léttar veitingar. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.