SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir30. nóvember 2020

Enn bætist við Skáldatalið

 

 

Sigríður Etna Marinósdóttir hefur nú bæst við Skáldatalið en hún hefur skrifað allt frá því að hún var barn. Sigríður Etna hefur sent frá sér þrjár bækur ætlaðar börnum og kom sú síðasta út á árinu, Hasar í hrauninu

 

Sigríður Etna gaf sjálf út barnabókina Hasar í hrauninu og sá Freydís Kristjánsdóttir um myndskreytingar. Kynning á bókinni er eftirfarandi:

Þórkatla, Járngerður og Gnúpur kynnast einstökum systkinum út í hrauni og lenda þar í óvæntu ævintýri. Nú þurfa þau að standa saman og vera hugrökk.