SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir10. nóvember 2020

Bókaspjall í beinni

Hinni árlegu Bókamessu 2020 var aflýst í ár, vegna kórónuveirunnar. Þess í stað er boðið upp á ýmsa viðburði í beinu streymi á Fésbók.

Á morgun segja þýðendur frá og lesa brot úr nýjum þýðingum sem sæta tíðindum í íslensku bókmenntalandslagi. Þar segir t.d. Áslaug Agnarsdóttir frá þýðingu sinni á rússnesku örsögunum, Gamlar konur detta út um glugga eftir Danííl Kharms, en meðþýðandi er Óskar Árni Óskarsson. Þá fjallar Magnús Sigurðsson um Berhöfða líf sem geymir úrval ljóða eftir bandarísku skáldkonuna Emily Dickinson ásamt ítarlegum inngangi hans.

Viðburðurinn hefst kl. 14 og verður streymt frá Facebook síðu Bókmenntaborgarinnar.

Hér má nálgast síðu Bókamessu í Bókmenntaborg en þar er m.a. að finna viðamikla dagskrá ásamt ýmsum fróðleik. Þá má einnig ná sér í gönguapp og fara í rafræna bókmenntagöngu sem er skemmtileg nýjung.