SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir20. september 2020

Útgáfufögnuði frestað

Þessum viðburði hefur verið frestað um óákveðinn tíma

Ásdís Óladóttir fagnar útkomu ljóðabókar sinnar Óstöðvandi skilaboð með útgáfuteiti og tónleikum. Fagnaðurinn mun eiga sér stað næstkomandi laugardag, 26. september, milli kl. 17:00 – 19:00 á Loft Hostel, Bankastræti 7, á 4. hæð.

Ljóðapönkhljómsveitin Gertrude and the flowers mun stíga á svið og flytja frumsamin lög við ljóð eftir Ásdísi. Hægt verður að næla sér í eintak af nýju bókinni á staðnum og fá skáldkonuna til að árita.

Á barnum má sækja sér frekari hamingju en þar verður ískalt vatn og annað í boði.

Öll eru velkomin á meðan húsrúm leyfir.