SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir 3. september 2020

Áður en flóðið kemur

Á sunnudaginn, 6. september, verður upplestur í Bókakaffinu Selfossi sem ber yfirskriftina: Áður en flóðið kemur, og er þetta eins konar forsmekkur að jólabókaflóðinu sem er í vændum.

Sami háttur verður hafður á og jafnan áður að lesið verður tvisvar sinnum, kl. 14 og 15. Til að virða samkomutakmarkanir verða einungis 12 miðar í boði á hvorn upplestur og því þarf að panta miða hjá Hörpu Rún í síma 8685196 eða með pósti á netfangið harparunholum@gmail.com. Aðgangur er sem fyrr ókeypis og kaffi í boði.

Líkt og kemur fram í lýsingu á viðburðinum þá fer Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir með lesendum sínum norður yfir heiðar í bókinni Aldrei nema kona sem notið hefur mikilla vinsælda. Vilborg Davíðsdóttir efnir síðan heit sitt og kemur aftur og les úr bókinni sem hún sýndi okkur brot úr í fyrra. Traustir upplestrargestir muna að Vilborg las þar í fyrsta sinn opinberlega úr verki í vinnslu og hét á Bókakaffið að ljúka bókinni innan árs. Bókin er væntanleg í lok október og eiga gestir vísast von á góðu að skyggnast á ný í heim skáldsins.

Þeir kumpánar Bjarni Harðarson og Guðmundur Brynjólfsson munu fara á sínum hefðbundnu kostum og kynna síðustu bækur þríleikja sinna. Bjarni lokar gullhreppahringnum með Síðustu dögum Skálholts en Guðmundur heldur sig nær ströndinni í Þögla barninu.

Tónlistarflutningur verður að þessu sinni í höndum Gunnlaugs Bjarnasonar, barýtonsöngvara, og við píanóið verður Hafsteinn Rúnar Jónsson. Þeir félagar munu flytja ljóðasöngva sem tengjast ám eftir bandarísku tónskáldin Aaron Copland og Charles Ives.

Hægt verður að fylgjast með seinni upplestrinum í streymi á facebooksíðu viðburðarins, Menningarsumarið í Bókakaffinu. Fólk er hvatt til að tryggja sér miða tímanlega, því mjög takmarkaður sætafjöldi er í boði.