SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir30. ágúst 2020

Ung kona kveður sér hljóðs

Bókaútgáfan Forlagið stendur fyrir samkeppni sem ber yfirskriftina NÝJAR RADDIR þar sem leitað er að góðum handritum eftir nýja höfunda. Sigurvegari keppninnar er Guðrún Brjánsdóttir en fyrsta skáldsaga hennar, SJÁLFSSTÝRING, er nýkomin út.

Í kynningu Forlagsins segir um efni sögunnar:

"Lífið virðist blasa við hæfileikaríkri, ungri konu. Hún á góða vini, ástríka fjölskyldu og er á leiðinni í spennandi inntökupróf við virtan tónlistarskóla erlendis. En eftir það sem vinur hennar gerði í partíinu um jólin upplifir hún aðeins einkennilegan doða og tengslaleysi við sjálfa sig og sína nánustu. Sjálfstýring er grípandi samtímasaga sem fjallar á raunsannan hátt um afleiðingar ofbeldis og leiðina til baka út úr myrku herbergi."

Skáld.is óskar Guðrúnu Brjánsdóttur til hamingju með bókina og býður hana velkomna á ritvöllinn.