SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir17. ágúst 2020

Rafrænt útgáfuhóf - Ljóðasafn Kristínar Ómarsdóttur

 

Bókaforlagið Partus býður upp á rafræna veislu í tilefni af útgáfu Ljóðasafns Kristínar Ómarsdóttur fimmtudaginn 20. ágúst, frá kl. 20-21. Ljóðasafn Kristínar geymir fyrstu átta ljóðabækur skáldkonunnar en flestar þeirra hafa verið ófáanlegar um langa hríð.

 

Þau sem vilja hafa bókina við höndina í veislunni geta nálgast eintak af bókinni á síðu Partusar.

 

Veislan verður í beinni útsendingu á viðburðasíðunni. Auk Kristínar munu nokkrir góðir gestir taka þátt í dagskránni, sem verður kynnt betur þegar nær dregur.