SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Ritstjórn19. júní 2020

Til hamingju með kvenréttindadaginn

Í tilefni dagsins birtum við ljóðið Við Þjóðveginn eftir Sigríði Einars frá Munaðarnesi, sem á einkar vel við:

Um þjóðveginn

Um þjóðveginn fóru fáeinar konur sem veltu úr grýttum vegi steinum.

Um þjóðveginn fóru fleiri konur, sem fundu gimsteina grafna í sandinn.

Og fjöldi kvenna fór um veginn, þá fleygðu ambáttir fjötrum og tötrum.

Þúsundir kvenna um þjóðveginn fóru, sem lögðu hornsteina að háum sölum.

Þær lögðu hornsteina að hælum, skólum, ruddu brautir og björgum lyftu.

Nú mynda fylkingu milljónir kvenna um alla þjóðvegi allra landa

í baráttu fyrir frelsi, réttlæti, friði og samúð í fegurri heimi.