SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir28. apríl 2020

Sigurunn frá Kurfi

Íslensk skáldkona með sérkennilegt en fallegt nafn, kona sem fór hljótt en sendi þó frá sér eitt ljóðasafn um dagana og orti m.a. svo um heimahagana:

Minning um Norðurland

eftir Sigurunni Konráðsdóttur

Birtist mér landssýn, björt í sólarloga,

brimþvegin ströndin, snækrýnd fjallabrún.

Sumarið breiðir faðm um vík og voga,

vel gróin engi, slegin heimatún,

standbjörgin traustu og dimmu gljúfrin gráu,

glymjandi fossa, heiðavötnin bláu.

Smálækir kátir hoppa stall af stalli,

steypa sér niður græna fjallahlíð.

Laufskrýddir bakkar baðast úðafalli,

brosa í mónum dalablómin fríð.

Búsmalinn allur breiðir sig um haga,

bítur í ró um fagra sumardaga.

Laufkrónur fléttar fagur birkiskógur,

hinn forni vörður þessa kalda lands.

Í faðmi hans er fundinn gróður nógur

og fegurðin stærsta birtist auga manns.

Smáfuglar skjól hans hættulaust sér hyggja,

hreiður sín glaðir ætla þeir að byggja.

Þetta er Ísland, aldna fóstran kæra,

indælast landa, drottins listaverk,

sem börnum sínum blessun kýs að færa,

blíð vill þau hafa, glaðlynd, hraust og sterk.

Það eldinn geymir innst í sínu brjósti,

en elur jökulskalla á hæsta tind.

Okkur það heillar gæðum með og gjósti.

Glæsileg er þess sanna tignarmynd.

Hér vil ég hvíla frjáls í fjallablænum,

finna er vættir landsins hefja dans.

Brimþungur niður berst til mín frá sænum,

blómálfar litlir gista vitund manns,

sálinni gæða á veig úr listalindum.

–Lífið er fagurt séð í draumamyndum.

Húnvetningaljóð. Ljóð eftir sextíu og sex höfunda. Rósberg G. Snædal og Jón B. Rögnvaldsson söfnuðu og sáu um útgáfuna. Akureyri 1955 bls. 266

Sjá í skáldatali um ævi Sigurunnar.