- Jóna Guðbjörg Torfadóttir
„Ekki senda þau burtu“

Ljóð dagsins er sótt í ljóðabókina Mamma, má ég segja þér eftir Eyrúnu Ósk Jónsdóttur. Ljóðið er afar áhrifarík bón um að komið sé vel fram við börn:
Getum við bara sammælst um að vera góð við börn?
Og ekki aðskilja þau frá foreldrum sínum á landamærum.
Og ekki setja þau í búr, aldrei setja þau í búr.
Og ekki láta þau drukkna á hriplekum báti, bara ekki láta þau drukkna!
Og ekki senda þau úr landi ríkisfangslaus út í óvissuna
né rífa þau úr leikskóla úr grunnskóla úr framhaldsskóla
frá vinum af heimili sínu. Ekki senda þau burtu.
Ekki senda þau á götuna í flóttamannabúðir í dauðann.
Ekki neita þeim um heilbrigðisþjónustu um menntun um ást um líf.
Bara plís! Getum við í hamingjunnar bænum sammælst um að vera góð við börn?