SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir 2. febrúar 2020

Fögnuður skrifandi kvenna 2020

Kona skrifar

Það var glatt á hjalla í Gunnarshúsi í gærkvöldi en þangað boðuðu skáldkonurnar Sigurlín Bjarney Gísladóttir og Margrét Tryggvadóttir konur sem eru að skrifa til að gleðjast saman. Þórdís Gísladóttir hélt afar áhrifaríkt erindi um hausatalningu og kynjagleraugu þar sem m.a. Hannes og Gréta komu mjög við sögu. Meira um það á næstu dögum!

Skáld.is leit við í hófinu og skrafaði ýmislegt skemmtilegt við konu og aðra ásamt því að taka fáeinar myndir af veislugestum:

Þórey Mjallhvít, Þórdís Gísladóttir, Margrét Tryggvadóttir, Sigurlín Bjarney Gísladóttir, Sjöfn Kristjánsdóttir, Fríða Bonnie Andersen, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir, Rebekka Sif Stefánsdóttir, María Hjálmtýsdóttir og Ásdís Óladóttir

Bergrún Íris Sævarsdóttir, Brynhildur Þórarinsdóttir, Melkorka Ólafsdóttir, Vala Þórsdóttir, Þórey Mjallhvít, Dögg Mósesdóttir og Oddný Eir Ævarsdóttir

Benný Sif Ísleifsdóttir, Sigurlín Bjarney Gísladóttir , Steinunn G. Helgadóttir, Sigurbjörg Friðriksdóttir, Jóna Guðbjörg Torfadóttir, Sólveig Pálsdóttir og Sigrún Eldjárn