SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir20. janúar 2020

„Fá rafmagnið alveg í gegn“

Kristjana Emilía Guðmundsdóttir

Kristjana Emilía Guðmundsdóttir skáldkona (f. 1939) hefur sent frá sér fimm ljóðabækur og skáldskapur hennar hefur birst víða. Hún bjó um skeið á skógarströnd en er nú búsett á Akranesi. 

Kristjana Emilía Guðmundsdóttir Ljóðárur

Eitt sinn var tekið stutt útvarpsviðtal við Kristjönu (rúm mínúta) meðan hún bjó þar. Þar segir Kristjana frá aðdráttum á Dröngum, mjólkurbílnum og væntanlegu rafmagni. Spjallið við Kristjönu er varðveitt hjá ismus, sem er vefur fyrir íslenskan músík- og menningararf; gagnagrunnur sem geymir og birtir á vefnum gögn er varða íslenska menningu fyrr og nú. Þar er að finna hljóðrit, ljósmyndir, kvikmyndir, handrit og texta. Verkefnið er í umsjá Tónlistarsafns Íslands og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Kristjana er komin í skáldatalið.

Mynd af Kristjönu: Skessuhorn