- Steinunn Inga Óttarsdóttir
Tilnefningar til íslensku bókmenntaverðlaunanna
Tilnefningar til íslensku bókmenntaverðlaunanna 2019 voru kynntar í dag. Tilnefndar eru bækur í þremur flokkum, fræðibækur og rit almenns efnis, barna- og ungmennabækur og fagurbókmenntir. Tilnefningin er alltaf þrungin spennu, aðeins eitt verk úr hverjum flokki hlýtur verðlaunin sem eru ein milljón í reiðufé.
Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1989. Skáldverk eftir konur eru í meirihluta í ár sem er sannarlega gleðiefni.
Tilnefningar 2019
Fræðibækur og rit almenns efnis
Jón Viðar Jónsson: Stjörnur og stórveldi á leiksviðum Reykjavíkur 1925 - 1965
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir: Lífgrös og leyndir dómar – Lækningar, töfrar og trú í sögulegu ljósi
Páll Baldvin Baldvinsson: Síldarárin 1867-1969
Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir: Jakobína – saga skálds og konu
Unnur Birna Karlsdóttir: Öræfahjörðin – Saga hreindýra á Íslandi
Barna- og ungmennabækur Arndís Þórarinsdóttir: Nærbuxnanjósnararnir
Bergrún Íris Sævarsdóttir: Langelstur að eilífu
Hildur Knútsdóttir: Nornin
Lani Yamamoto: Egill spámaður
Margrét Tryggvadóttir: Kjarval – málarinn sem fór sínar eigin leiðir
Fagurbókmenntir
Bergþóra Snæbjörnsdóttir: Svínshöfuð
Bragi Ólafsson: Staða pundsins
Guðrún Eva Mínervudóttir: Aðferðir til að lifa af
Sölvi Björn Sigurðsson: Selta - Apókrýfa úr ævi landlæknis
Steinunn Sigurðardóttir: Dimmumót