SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir19. nóvember 2019

Ný skáldsaga frá Kristínu Ómarsdóttur

 

 

Kristín Ómarsdóttir hefur sent frá sér skáldsöguna, SVANAFÓLKIÐ. Á baksíðu bókakápunnar stendur:

Elísabet starfar við eftirlit hjá leynilegri sérdeild innanríkisráðuneytisins og er við það að uppgötva nokkuð sem mun koma öllu lífi hennar úr jafnvægi. Svanafólkið er skáldsaga sem jafnast á við öldina sem við lifum - í senn óhuganleg, dularfull, safarík og grátbrosleg. Kristín Ómarsdóttir fer með lesandann í ævintýralegt ferðalag og veltir um leið upp áríðandi spurningum um hvað það þýðir að tilheyra fjölskyldu, þjóð, líftegund.