SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir11. nóvember 2019

Kærastinn er rjóður

Út er komin fimmta ljóðabók Kristínar Eiríksdóttur, Kærastinn er rjóður, og prýðir bókakápuna (líklega tölvugerð) ljósmynd af myndarlegum karlmanni rjóðum í kinnum. Í ljóðum bókarinnar er rýnt í ástarsamband ljóðmælandi við marga (eða einn) kærasta og er ýmsum og flóknum fletum slíkra sambanda velt upp. Hér er brot úr bókinni:

þá sástu að ég var alveg eins og

hún sem þú sagðir mér að hefði tælt þig eða

hin sem þú sagðir mér að hefði bælt þig eða

þessi sem hefði gelt þig og

ég gat alveg séð að þú varst alveg eins og

þessi sem átti ekki neitt eða

þessi sem tímdi engu eða

þessi sem stal