SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir10. júní 2019

EIN GEGN ÖLLUM

 

Í dag, annan í hvítasunnu kl. 14, er útvarpsþátturinn Ein gegn öllum á rás 1 um Oddnýju Guðmundsdóttur (1908-1985), skáldkonu frá Hóli á Langanesi.

Oddný er rithöfundur sem ekki fer hátt í íslenskri bókmenntasögu. Þó sendi hún frá sér fimm skáldsögur á árunum 1943-1983. Hún samdi einnig beitta pistla, kvæði og smásögur auk þess sem hún fékkst við þýðingar. Mestan hluta ævi sinnar stundaði hún farkennslu í sveitum landsins og fór á milli landshluta á reiðhjóli langar dagleiðir. Hún var eldheitur sósíalisti og landskunn fyrir beitta pista í fjölmiðlum um íslenska tungu og menntamál. Fátt segir þó af þessari merku konu á spjöldum sögunnar.

Oddný fór alltaf eigin leiðir, bæði í starfi, einkalífi og skáldskap. Hún var frjáls og sjálfstæð kona sem skar sig úr, hún átti hvergi fastan samastað og var alla ævi óþreytandi að bæta heiminn. Hún reis gegn hefðbundnu kynhlutverki, gekk í buxum þegar aðrar konur klæddust kjól, giftist aldrei og eignaðist ekki börn. Þá gekk hún menntaveg og ferðaðist víða, m.a. til Sovétríkjanna, og tróð sér fram á ritvöll þar sem karlar réðu ríkjum og settu bókmenntir kvenna skör lægra.

Oddný hafði flókna skapgerð og var samsett úr ríkum andstæðum sem birtast í verkum hennar; annars vegar íhaldssemi og forneskju sem birtast vel í skáldsögum hennar en hins vegar framsýni og róttækni eins og sjá má í hugmyndum hennar í kennslu- og uppeldisfræði. Hún var í senn frumkvöðull og afturhald og hugsjónir hennar um jafnrétti og málverndun birtast skýrt í höfundarverkinu.

Í þættinum er rætt við fólk sem þekkti Oddnýju í lifanda lífi og leikin brot úr gömlu útvarpsefni sem tengist henni.

Umsjón með þættinum hefur Steinunn Inga Óttarsdóttir.