SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir20. maí 2019

Ný bók eftir nýja og upprennandi skáldkonu

Hugarheimur skúffuskálds kom út núna um mánaðamótin en þetta er fyrsta ljóðabók höfundar. Skáldkonan, Steinunn Dagmar, er einungs 19 ára gömul og gaf hún sjálf út bókina.

Ljóðabókinni er skipt upp í sex kafla sem einkennast af litum. Í hverjum kafla er ákveðið þema sem hvergi er útskýrt fyrir lesandanum svo hver og einn getur búið sér til hugmynd um það hvað býr í raun að baki litaskiptingarinnar. Hér á eftir fara tvö ljóð úr bókinni, hvort úr sínu litaþema:

Í garðinum heima Með kórónu úr fíflum og heimaræktuð hindber í hönd virti ég fyrir mér ríkidæmið Með vöfflur í hárinu og ósvikið bros á vör sveiflaðist ég í trénu Með heiminn í hendi mér og hamingjuna í fararbroddi tók ég stefnuna á tunglið

Strákapör

​„Hann er bara skotinn í þér“ var sagt við stelpuna þegar strákurinn hrinti henni „Hann elskar mig bara svo mikið“ sagði konan við sjálfa sig þegar maðurinn reif í hár hennar af einskærri ást mar beinbrot sprungin vör „Æ þetta eru nú bara strákapör“